Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra og Embætti landlæknis hefur boðað til upplýsingafundar í dag klukkan 14. Fundurinn verður í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu og er þetta fyrsti upplýsingarfundurinn síðan 25.maí.
Tilefnið fundarins er opnun landamæra Íslands mánudaginn 15. júní, en þá mun ferðamönnum bjóðast að gangast undir sýnatöku vegna kórónuveirunnar, sæta sóttkví í 14 daga eða framvísa gildu vottorði þess efnis að þeir séu ekki smitaðir af kórónuveirunni.
Lítið hefur verið um greind smit hérlendis undanfarnar vikur og eru aðeins þrír með virkt smit eins og er.
Þetta kemur fram á vef mbl.is