Samfélagsmiðlastjarnan Garðar Viðarsson, eða Gæi eins og hann er kallaður, stýrir þáttunum Litla dæmið. Þátturinn er unninn af Studio Kast og er hægt að fylgast með honum á Facebook-síðu þeirra.
Í nýjasta þættinum fer Gæi til Vestmannaeyja og gistir meðal annars í geimklefa, borðar góðan mat og hressir sig við með nokkrum ísköldum bjórum ættuðum úr Eyjum. Sjón er sögu ríkari!