Ársskýrsla Umhverfisstofnunar er komin út fyrir árið 2019 nú í annað sinn á rafrænu formi.
Ársfundur stofnunarinnar féll niður að þessu sinni eins og ýmsir aðrir viðburðir sem orðið hafa fyrir röskun að undanförnu. Við viljum auka vægi rafrænnar miðlunar í þágu almennings og létta ykkur sporið. Ársskýrslan fær því veigameira hlutverk í að miðla þeim verkefnum sem hafa verið í brennidepli á tímabilinu. Í skýrslunni má sjá örerindi frá sérfræðingum stofnunarinnar á sviðum loftslags-, náttúruverndar- og vatnamála. Líkt og áður endurspeglar skýrslan þau markmið sem Umhverfisstofnun hefur sett sér til ársins 2022 og drögum við fram þá árangursvísa sem hvað best lýsa hlutverki okkar og starfsemi á liðnu ári.
Ársskýrsluna má nálgast hér. https://arsskyrsla.ust.is/2019/
Til hagræðingar, ef áhugi er á umfjöllun, þá eru hér að neðan tengiliðir fyrir hvern kafla skýrslunnar:
- Loftslagsmál og Loftgæði: Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri (elva@umhverfisstofnun.is)
- Verndun náttúru: Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri (olafurj@umhverfisstofnun.is)
- Verndun vatns, hafs og stranda: Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri (olafurj@umhverfisstofnun.is)
- Verndun heilnæms umhverfis: Skúli Þórðarson, sviðsstjóri (skuli.thordarson@umhverfisstofnun.is)
- Sjálfbær nýting auðlinda: Skúli Þórðarson, sviðsstjóri (skuli.thordarson@umhverfisstofnun.is)
- Grænt og framsýnt samfélag: Elva Rakel Jónsdóttir, sviðsstjóri (elva@umhverfisstofnun.is)
- Markviss upplýsingagjöf: Kristín Kalmansdóttir, sviðsstjóri (kristin.kalmansdottir@umhverfisstofnun.is)
- Fyrirmyndar stofnun: Kristín Kalmansdóttir, sviðsstjóri (kristin.kalmansdóttir@umhverfisstofnun.is)
Símanúmer Umhverfisstofnun er 591-2000