Enginn var með allar tölur réttar í útdrætti vikunnar og verður potturinn því tvöfaldur í næstu viku. Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og hljóta þeir tæpar 130 þúsund krónur hver. Tveir miðanna eru í áskrift og þriðji miðinn var keyptur í Euro Market á Smiðjuvegi 2 í Kópavogi.
Fimm voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir i Lukku Láka í Þverholti 2 í Mosfellsbæ, Loppu á Búðarvegi 60 á Fáskrúðsfirði, einn í Lottó-appinu og tveir miðanna voru í áskrift.