Dregið var í Happdrætti Háskóla Íslands í gærkvöldi og vann einn heppinn miðaeigandi 5 milljónir. Þetta kemur fram í tilkynningu frá happdrættinu.
Átta heppnir miðaeigendur unnu eina milljón hver og níu fengu hálfa milljón hver.
Alls skipta vinningshafar í júlíútdrætti með sér rúmum 104 skattfrjálsum milljónum.