Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út í gærkvöldi vegna óvelkomins aðila í heimahúsi í austurhluta Reykjavíkurborgar.
Þegar lögregla mætti á staðinn og vísaði viðkomandi út þá brást hann illa við og sló lögreglukonu í andlitið. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu. Ekki er tekið fram hvort konan slasaðist.