Um klukkan 22 í gærkvöldi var slökkvilið Höfuðborgarsvæðisins kallað út vegna elds í uppþvottavél.
Heimilisfólk var búið að slökkva eldinn með slökkvitæki þegar slökkviliðið kom á staðinn, að sögn varðstjóra, en mikill reykur var í íbúðinni. Íbúðin var reykræst en eitthvað tjón varð að völdum elds og reyks.