Á níunda tímanum í gærkvöldi barst lögreglu tilkynning um líkamsárás í Hafnarfirði.
Ökumaður bifreiðar virtist ósáttur við ökulag 16 ára drengs á vespu. Hann ók utan í vespuna, fór út úr bifreiðinni og tók kveikjuláslykla úr vespunni. Kastaði þeim í jörðina og sló drenginn í andlitið. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu.