Á vef Ferðamálastofu er óskað eftir gististöðum sem geta tekið á móti gestum í sóttkví.
,,Eins og flestum er kunnugt þá þurfa allir sem koma til landsins frá og með 19. ágúst að far í tvöfalda skimun og 4-5 daga sóttkví. Þeir gististaðir sem eru tilbúnir að taka á móti gestum sem þurfa að fara í sóttkví geta skráð sig hér að neðan,“ segir á síðunni.
Skráning gististaða sem taka á móti fólki í sóttkví
Leiðbeiningar fyrir gististaði sem þjónusta gesti í sóttkví
- Rekstraraðili þarf að þekkja þær reglur sem gilda hér á landi um Covid-19 og vera tilbúin að leiðbeina sínum gestum.
- Herbergi sem ætluð eru gestum í sóttkví þurfa að vera í sérálmu, á hæðum þar sem aðrir gestir dvelja ekki eða stakstæð t.d. lítil gestahús.
- Hvert og eitt herbergi þarf að vera með sérbaðherbergi og salerni.
- Tryggja þarf að nægar birgðir á herberginu fyrir gesti til a.m.k. fimm daga s.s. af handklæðum. salernispappír og sápu.
- Upplýsingar um sóttkví og COVID-19 þurfa að vera gestum aðgengileg.
Sjá covid.is, landlaeknir.is og ferdamalastofa.is/covid - Öll þjónusta fer fram við herbergisdyr s.s. afhending á mat.
Starfsfólk má ekki fara inn í herbergi gesta og starfsfólk skilur nauðsynjar eftir við herbergishurð. - Upplýsingar um helstu þjónustu sem gestir geta fengið þurfa að vera inn á herberginu s.s morgunverðarþjónustu, matseðlar fyrir aðrar veitingar, veitingastaðir í nágreni sem eru með heimsendingu, verslanir með heimsendingu og þess háttar.
- Starfsfólk gististaðar þarf að vera tilbúinn að sækja t.d. lyf fyrir gesti sem eru í sóttkví.
- Gististaður er ekki ábyrgur fyrir hegðum gesta, ef grunur leikur á að gestur sé að brjóta sóttkvíarreglur hafið þá samband við lögreglu.
- Gististaður þarf að liðsinna gestum við að panta tíma í seinni skimun á næstu heilsugæslustöð og leiðbeina gestum um hvar sú stöð er og hvernig best má komast þangað (panta leigubíl ef þarf). Sjá lista yfir skimunarstaði hér.
- Gestir eru ábyrgir fyrir greiðslum á allri þjónustu sem þeim er veitt.
- Nánar upplýsingar um sóttvarnarhús/gististað er að finna hér. (verður uppfært 17. ágúst)
Hvað mega gestir gera í sóttkví?
- Gestir eiga að halda sig sem mest í sínu herbergi.
- Gestir mega fara út í göngu enn þurfa að tryggja 2. metra regluna og mega ekki staldra við á sameiginlegum svæðum gististaðarins.
- Ef gestir hafa bíl til umráða þá mega þeir fara í ökuferð en mega ekki fara í skoðunarferðir á fjölmennum ferðamannastöðum.
- Sjá frekari upplýsingar í meðfylgjandi leiðbeiningum.