Auglýsing

Þrír skiptu með sér bónusvinningnum

Enginn var með allar tölur réttar í Lottó útdrætti gærkvöldsins og verður potturinn því þrefaldur í næstu viku. Þrír skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hver þeirra rétt rúmar 143 þúsund krónur. Miðarnir voru keyptir í Hagkaup Skeifunni í Reykjavík, N1 Háholti í Mosfellsbæ og einn miðinn var í áskrift.

Fimm voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fá fyrir það 100 þúsund krónur í vinning hver. Miðarnir voru keyptir í Prinsinum í Hraunbæ í Reykjavík, einn miðinn var keyptur á heimasíðu Lotto.is og þrír miðanna voru í áskrift.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing