Yfir eitthundrað mál voru skráð í dagbók lögreglunnar á Höfuðborgarsvæðinu á milli klukkan 17 og 5 í nótt. og var mikið um tilkynningar vegna hávaða. Alls gistu 7 í fangageymslum.
Ofurölvi kona var handtekin í strætisvagni í hverfi 105 rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Hún er grunuð um að hafa ráðist á vagnstjórann og slegið til hans með áfengisflösku.
Ellefu ökumenn til voru stöðvaðir fyrir akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.