Lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu stöðvaði mikinn fjölda ökumanna í gærkvöldi og í nótt vegna gruns um akstur undir áhrifum vímuefna.
Um klukkan hálftvö í nótt var bifreið stöðvuð í Kópavogi eftir að hafa mælst á 141 km hraða þar sem leyfður hámarkshraði er 80 km/klst.
Ökumaðurinn má búast við að missa ökuskírteinið, sem var einungis nokkurra daga gamalt.