Það er erfitt að halda stemmningunni uppi við að lýsa íþróttaleikjum en það flækist ekki fyrir okkar manni – Rikka G. Hann var að lýsa leik Víkings R. og FH þegar hann sá stórkostleg mark í uppsiglingu og öskraði „ERLINGÖHH!!!“
Rikki þurfti svo að bæta við stuttu seinna: „nei, þetta var reyndar endursýning“. Myndbandið sló eðlilega í gegn á Twitter en það er óhætt að hrósa Rikka fyrir að leggja sig allan fram við lýsingarnar – líka endursýningarnar.
„ERLINGÖÖH…….nei þetta var reyndar endursýning“. Alvöru passion hjá @RikkiGje hvort sem um er að ræða endursýningu eða ekki. ? #pepsimaxdeildin #fh #víkingur #fotboltinet pic.twitter.com/PYFgvAsIVV
— Hrafnkell Helgi Helgason (@HHelgason7) September 18, 2020