Mikinn reyk lagði frá bifvélaverkstæði í Kópavogi í dag. Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað út klukkan rúmlega tvö í dag vegna brunans.
Allar stöðvar voru kallaðar út og voru alls 25 slökkviliðsmenn og þrír dælubílar við störf á vettvangi.
Í samtali við Fréttablaðið sagði Sigurjón Hendriksson varðstjóri að ekki væri vitað til þess að neinn hafi verið inni í húsinu þegar eldurinn kviknaði. Ekki liggur fyrir hver tildrög brunans voru.