Kósíheit í Hveradölum fór af stað á rúv á laugardagskvöldið en Hljómsveitin Baggalútur býður til jólatónlistarveislu í Skíðaskálanum í Hveradölum á laugardögum í desember.
Í þáttunum fá þeir góða gesti í heimsókn og flutt verða bæði gömul og ný jólalög.
Í þessum fyrsta þætti fluttu þær Bryndís Jakobs, Sigríður Thorlacius og Ragnheiður Gröndal Baggalútssmellinn Sagan af Jesúsi.