Hvorki 1., 2. né 3. vinningur gengu út þessa vikuna í Lottó en tveir skiptu með sér al-íslenskum 4. vinningi og fær hvor þeirra rúmlega 250 þúsund. Annar miðinn er í áskrift en hinn var keyptur í Fjarðarkaupum í Hafnarfirði.
Einn var með allar Jókertölurnar í réttri röð og fær hann því 1. vinning sem hljóðar upp á 2 milljónir króna. Miðinn er í áskrift. Þá voru fjórir með 2. vinning í Jóker og fá þeir 100 þúsund krónur hver, tveir miðanna eru í áskrift og tveir voru keyptir á heimasíðunni lotto.is.