Elísabet Guðmundsdóttir lýtalæknir hefur verið dugleg að lýsa opinberlega yfir andúð sinni á þeim sóttvarnaraðgerðum sem gripið hefur verið til hér á landi vegna kórónuveirunnar og gagnrýnt harðlega grímunotkun.
Hún var handtekinn í bíl sínum á fimmtudaginn síðastliðinn og birti myndband af atvikinu á Facebook síðu sinni. Myndbandið má sjá hér . Í færslu með myndbandinu sakar hún lögreglumenn um harkalega framkomu í hennar garð. Ástæða handtökunnar var sú að Elísabet hafði átt að mæta í skýrslutöku, eftir að hafa neitað að gangast undir skimun eða fara í sóttkví við komuna til landsins í byrjun desember, en mætti ekki.
Nú hefur hún birt nýja færslu á Facebook síðu sinni þar sem hún greinir frá hótunum um ofbeldi og setur inn mynd þar sem sjá má að búið er að grýta eggjum í hús hennar.
„Ofbeldið gegn mér tekur engan enda og netníðingar farnir að ráðast á mig á heimili mínu og ég hef sent börnin mín i öryggi. Ég er særð, leið, hrædd og vanmáttug, er beitt ofbeldi og einelti ekki aðeins yfirvalda og lögreglu heldur einnig samlanda minna,“ skrifar hún meðal annars í færslunni.
„Mér hafa borist alvarlegar hótanir um barsmíðar, nauðganir og líflát og hef greint lögreglu frá því í tvígang og beðið um aðstoð/vernd. Þeir settu mig samt út a götu eina um miðja nótt eftir 3ja tíma yfirheyrslu um miðja nótt eftir að hafa verið handtekin, dregin út út bil mínum, handjárnuð, og beitt hræðilegu ofbeldi lögreglunnar. Ég var látin sitja handjárnuð fyrir aftan bak með poka yfir höfði mér umkringd 5 lögreglumönnum og án lögfræðings eða annarar manneskju,“ heldur hún áfram.