Svavar Gestsson fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins, ráðherra og sendiherra er látinn. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans aðfaranótt 18. janúar. Svavar var fæddur 26. júní 1944 og var því 76 ára gamall þegar hann lést.
Eftirlifandi eiginkona Svavars er Guðrún Ágústsdóttir, fyrrum borgarfulltrúi í Reykjavík. Svavar eignaðist þrjú börn með fyrri konu sinni Jónínu Benediktsdóttur.