Sjónvarpsmaðurinn og spjallþáttastjórnandinn Larry King er látinn 87 ára að aldri.
King var einn þekktasti sjónvarps og fjölmiðlamaður heimsins í áratugi og talið er að hann hafi tekið um 50.000 viðtöl á rúmlega sextíu ára ferli sínum. Ekki er greint frá dánarorsök hans en hann var lagður inn á sjúkrahús fyrr í þessum mánuði með Covid-19.
Hann glímdi við hina ýmsu kvilla síðustu ár ævinnar, þar á meðal lungnakrabbamein og hjartaáfall.
— Larry King (@kingsthings) January 23, 2021