Söngkonurnar Selma, Hansa og Margrét Eir voru gestir þáttarins Í kvöld er gigg síðasta föstudagskvöld á Stöð2.
Í hverjum þætti syngur Ingó sig í gegnum tónlistarsögu landsins ásamt gestum þáttarins.
Hér fyrir neðan má sjá þær stöllur með stórkostlegan flutning á laginu Hey mína bæn og skiptast þær á að syngja á ítölsku og íslensku.