Auglýsing

Tveir með fyrsta vinning!

Tveir heppnir áskrifendur skiptu með sèr 1. vinningi í Lottó útdrætti kvöldsins og hlýtur hvor þeirra rétt tæpar 5 milljónir króna í vinning.

Tveir miðahafar skiptu með sér bónusvinningnum og hlýtur hvor þeirra tæpar 685 þúsund krónur í sinn hlut. Annar miðinn var í áskrift en hinn miðinn var keyptur á N1 á Húsavík.

Einn miðahafi var með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og hlýtur hann 2 milljónir króna í vinning. Miðann keypti hann á heimasíðunni lotto.is

Fjórir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð og fá fyrir það 100 þúsund krónur hver. Þrír miðanna voru í áskrift en fjórði miðinn var keyptur í Olís Ánanaust, Ánanaust 10 í Reykjavík.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing