Leyfilegur opnunartími veitingastaða verður lengdur til klukkan 23, þó verður einungis heimilt að hleypa nýjum gestum inn til klukkan 22. Þetta tilkynnti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra eftir fund ríkisstjórnarinnar í morgun.
Almennar fjöldatakmarkanir verða 50 manns samkvæmt nýjum reglum um samkomutakmarkanir. Nýju reglurnar taka gildi á morgun, 24. febrúar.
„Heimilt verður að hafa að hámarki 200 viðskiptavini í verslunum, á söfnum, í kirkjum og á tilteknum viðburðum. Sund- og baðstöðum og skíðasvæðum verður heimilt að taka á móti 75% af leyfilegum hámarksfjölda gesta. Sama máli gegnir um heilsu- og líkamsræktarstöðvar en þar er jafnframt óheimilt að hafa fleiri en 50 manns í rými. Á íþróttakeppnum verður nú heimilt að hafa áhorfendur. Þetta er megininntak tilslakana á samkomutakmörkunum sem heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að gera í samræmi við tillögur sóttvarnalæknis. Gildistími nýrrar reglugerðar um takmarkanir á samkomum vegna farsóttar er til og með 17. mars nk,“ segir á vef heilbrigðisráðuneytisins.