Hráefni:
- 1 kg kartöflur
- sjávarsalt eftir smekk
- heimalagað smjör með hvítlauk og steinselju (uppskrift hér að neðan)
- fersk steinselja eða saxaður graslaukur til skrauts
- Nýrifinn parmesan ostur
Aðferð:
1. Sjóðið kartöflurnar þar til þær fara að mýkjast eða í 20 mín. Hellið vatninu af þeim.
2. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og hitið ofninn í 225 gráður.
3. Raðið kartöflunum á ofnplötuna og kremjið þær örlítið niður með botninum á glasi. Setjið litla hvítlaukssmjör klípu á hverja kartöflu ásamt smá sjávarsalti.
4. Bakið í 25 mín og stillið ofninn á grill stillingu síðustu 10 mínúturnar.
5. Rífið ferskan parmesan ost yfir þær og setjið þær aftur inn í ofn þar til osturinn bráðar. Berið fram strax með ferskri steinselju.
Hvítlaukssmjör:
200 gr mjúkt smjör
3 hvítlauksgeirar rifnir niður
handfylli söxuð fersk steinselja
sjávarsalt
Öllu hrært vel saman. Gott er að gera smjörið nokkru áður en það er notað og leyfa því að standa í kæli.