Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, hefur skilað inn nýjum tillögum að sóttvarnarreglum til Svandísar Svavarsdóttur, heilbrigðisráðherra. Þetta staðfesti Þórólfur í Bítinu á Bylgjunni nú í morgun
Ný reglugerð mun taka gildi strax á fimmtudag, 17. mars. Hann vildi ekki gefa mikið upp um nýju reglurnar en segir þó að ekki sé um miklar tilslakanir að ræða.
„Ég held að við eigum að fara rólega í þetta, því við getum og erum að fá smit á landamærum, þó við séum að reyna að gera allt sem við getum, þá getur það smogið sér inn og þarf ekki mikið til,“ segir Þórólfur.
Reglugerðin sem er í gildi á landamærunum gildir til 1. maí. Fólk á vegum stjórnvalda vinnur nú hörðum höndum að breyttu fyrirkomulagi.
„Það hafa ýmsar útfærslur verið ræddar og það er verið stefnt að því, að reyna að opna á einhverjum tímapunkti,“ segir Þórólfur.
„En ég veit ekki til þess að stjórnvöld hafi sagt nákvæmlega til um það hvernig fyrirkomulagið verði 1. maí, en það er stefnt að þessu.“