Grunn-, framhalds- og háskólum landsins var lokað í síðustu viku í þeim tilgangi að hindra útbreiðslu kórónuveirunnar hér innanlands.
Í viðtali við Morgunútvarp Rásar 2 í morgun sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir að ef vel takist að halda kórónuveirufaraldrinum niðri hér á landi næstu daga, verði hægt að hefja skólastarf að nýju strax eftir páska.
„Ég er að vinna að minnisblaði í samráði við heilbrigðisráðuneytið og menntamálaráðuneytið varðandi það hvað tekur við í skólum eftir páska. Ég held að við þurfum endilega að koma þessu af stað og vonumst til þess að faraldurinn haldist bara niðri og að við verðum á góðum stað þannig að við getum haldið áfram að aflétta tiltölulega hratt, þar á meðal í skólunum,“ sagði Þórólfur.