Fyrsti vinningur gekk ekki út þessa vikuna í Vikinglottó en hins vegar gekk 2. vinningur út og fór hann, óskiptur á einn miða, til Finnlands. Hlýtur eigandi þessa happamiða rúmlega 37,3 milljónir í vinning. Einn var með al-íslenska 3. vinninginn og hlýtur sá heppni rúmlega 1,8 milljón, vinningsmiðinn var keyptur í Olís á Dalvík.
Heppinn áskrifandi var með allar Jókertölurnar í réttri röð og hlýtur því 1. vinning sem er 2 milljónir. Fimm spilarar voru með fjórar réttar Jókertölur í réttri röð og fá þeir 100 þúsund króna vinning hver, miðana keyptu þeir á eftirtöldum stöðum; 10-11 Laugavegi 116, Reykjavík, Olís við Álfheima í Reykjavík, einn er með miðann sinn í áskrift, einn keypti á lotto.is og einn í Appinu.