Auglýsing

Tveir með 1. vinning í Lottó

Tveir miðahafar voru með allar tölur réttar í Lottó í kvöld! Þeir skipta því með sér 1. vinningnum en potturinn var uppá rúmlega 10,2 milljónir og því fær hvor vinningshafi rúmar 5,1 milljón króna. Annar miðaeigandinn er í áskrift að Lottó og hinn keypti miðann í Lottó appinu. Enginn var með bónusvinninginn í kvöld.

Þá var einn miðahafi með allar tölur réttar í réttri röð í Jóker og fær því 2 milljónir króna í vinning. Miðinn var keyptur á Engjavegi 6, í Íslenskri Getspá. Fjórir miðahafar voru svo með 2. vinninginn og fá 100 þúsund krónur hver. Tveir miðanna voru keyptir í Lottó appinu en hinir tveir eru í áskrift.

 

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing