Á dögunum greindist einn úr íslenska Eurovison hópnum með Covid-19 og fór hópurinn í kjölfarið í sóttkví.
Í morgun voru átta úr íslenska hópnum skimaðir fyrir veirunni og greindist þá einn úr Gagnamagninu með veiruna. Þetta staðfestir Rúnar Freyr Gíslason, fjölmiðlafulltrúi íslenska hópsins, í samtali við fréttastofu rúv
„Þetta er mikið högg,“ segir hann.
Ólíklegt þykir að Daði og Gagnamagnið fái að taka þátt í æfingunni í kvöld og litlar líkur á að sveitin stígi á svið í beinni útsendingu annað kvöld. Líklega verður notuð upptaka, sem að sögn Rúnars Freys, er frá æfingu síðustu viku.