Viktoría Hermannsdóttir og Sólmundur Hólm Sólmundsson eignuðust son í gær, 7. júní. Þessu greinir Sólmundur frá á Instagram.
Þetta er fimmta barnið þeirra en þeirra annað barn saman.
„Öllum heilsast vel og við erum að springa úr ást! Við viljum koma gríðarlega miklu þakklæti á framfæri til þess yndislega starfsfólks sem starfar á sjúkrahúsinu á Akranesi þar sem við vorum trítuð eins og kóngafólk“ skrifar Sólmundur.
View this post on Instagram