Erlendur ferðamaður varð viðskila við eiginkonu sína við gosstöðvarnar við Fagradalsfjall, um miðjan dag í gær.
Leit bar engan árangur í nótt en þyrla landhelgisgæslunnar tekur nú þátt í leitinni.
Gunnari Schram, yfirlögregluþjóni lögreglunnar á Suðurnesjum, segir í samtali við Vísi að búið sé að kemba allt svæðið í kring um hraunið síðan maðurinn týndist.
„Jú, við teljum okkur vera búin að því og eftir að það létti núna í morgun þá hefur þyrlan verið að fara aftur yfir það svæði. En leitarskilyrðin voru ekki góð í nótt, lágskýjað og þoka.“
Er nú aðallega leitað í kringum svæðið skammt norður af Stóra Hrúti, en þar sást síðast til mannsins í gær.