Sólin og hitinn heldur áfram á Austurlandi en Veðurstofan gerir ráð fyrir allt að 26 gráðu hita í þeim landshluta í dag.
Sunnan og suðvestan 5-13 m/s, en 10-15 við fjöll á norðan- og norðvestanverðu landinu í fyrstu og suðlæg eða breytileg átt 3-8 á morgun.
Þokusúld eða rigning með köflum vestanlands en léttskýjað austanlands. Hiti 12 til 26 stig, hlýjast í innsveitum á Austurlandi. Líkur á þoku við sjávarsíðuna um allt landið á morgun og heldur svalara á austanverðu landinu.