Barn var flutt með þyrlu LHG á sjúkrahús í Reykjavík eftir miðjan dag í gær en það hafði fest sig í stiga í sundlauginni á Flúðum og misst þar meðvitund.
Nærstaddir náðu, með snarræði, að losa barnið og með skyndihjálparkunnáttu sinni að koma því til meðvitundar á ný. Barnið liggur nú á sjúkrahúsi og upplýsingar um líðan þess liggja ekki fyrir.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi.