Þriggja bíla árekstur varð á öðrum tímanum í dag á Hellisheiðinni, þegar vörubíll, fólksbíll og sendiferðabíll skullu saman.
Samkvæmt lögreglunni á Suðurlandi urðu engin slys á fólki en tjónið á bílunum var töluvert.
„Þetta er minniháttar í sjálfu sér. Þetta er aftanákeyrsla og engin fluttur með sjúkrabíl eða neitt slíkt. Fólksbílinn keyrir aftan á sendiferðabílinn. Það eru engin slys á fólki,“ segir Sveinn Kristján Rúnarsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við Fréttablaðið