Hráefni:
- 1 1/2 dl extra virgin ólífuolía
- 2 hvítlauksgeirar, rifnir niður
- 1 msk fersk söxuð basilika
- 1 msk ferskt saxað timjan
- 1 msk ferskt saxað oreganó
- 1/2 tsk chilliflögur, eða eftir smekk
- 1/4 tsk sjávarsalt
- 400 gr litlar mozzarella kúlur
Aðferð:
1. Blandið saman ólívuolíu, hvítlauk, kryddjurtum, chilliflögum og salti.
2. Bætið mozzarella kúlunum saman við og blandið vel saman.
3. Leyfið þessu að marínerast í minnst klukkutíma. Þetta geymist í loftþéttum umbúðum í kæli í nokkra daga.