Auglýsing

Hveitilaus súkkulaðikaka með espresso gljáa

Hráefni:

250 gr dökkt súkkulaði, helst 60-70 %

180 gr ósaltað smjör

70 gr nýbruggaður sterkur espresso

6 egg

180 gr sykur

260 gr möndlumjöl

20 gr kakó

5 gr sjávarsalt

Silkimjúkur espresso gljái:

80 gr sykur

15 gr kakó

100 gr nýbruggaður sterkur espresso

Aðferð:

1. Hitið ofninn í 190 gráður. Bræðið súkkulaði og smjör saman yfir vatnsbaði. Hrærið espresso saman við ásamt salti. Blandið vel saman og takið af hitanum.

2. Þeytið saman egg og sykur þar til blandan verður ljós og þykk ( gott er að gera þetta yfir vatnsabaði).

3. Hrærið súkkulaðiblönduna saman við eggjablönduna og hrærið áfram í 2-3 mín. Blandið möndlumjöli og kakó saman við og blandið þessu saman með sleif.

4. Útbúið espresso gljáann: Setjið sykur, kakó og espresso í lítinn pott og hitið að suðu. Leyfið þessu að malla í um 2 mín og hrærið í allan tímann. Þegar blandan er klár er þetta tekið af hitanum.

5. Smyrjið kökuform að innan með smjöri. Lækkið ofnhitann í 175 gráður. Hellið deiginu í formið og bakið í um 40 mín. Þegar kakan er komin úr ofninum og hefur kólnað að mestu, er gljáanum hellt yfir og þetta borið fram með þeyttum rjóma eða vanilluís.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing