Rétt fyrir klukkan átta í gærkvöldi barst lögreglunni tilkynning um þjófnaði í verslun í Kópavogi.
Maðurinn hafði verið stöðvaður þegar hann ætlaði að yfirgefa verslunina. Í ljós kom að maðurinn hafði sett tuttugu, 500.gr, smjörstykki í bakpokann sinn og ætlaði hann því að hafa á brott 10 kíló af smjöri.
Lögreglan tók vettvangsskýrslu af manninum.