Verðlaunaða kvikmyndin Dýrið með stórleikurunum Noomi Rapace og Hilmi Snæ Guðnasyni er nú komin í Sjónvarp Símans Premium.
Dýrið var valin frumlegasta myndin á kvikmyndahátíðinni í Cannes fyrr á árinu. Myndin segir frá sauðfjárbændunum Maríu og Ingvari sem búa í fögrum en afskekktum dal og þegar dularfull vera fæðist á bóndabænum ákveða þau að halda henni og ala upp sem sitt eigið afkvæmi. Vonin um nýja
fjölskyldu færir þeim mikla hamingju um stund en verður þeim síðar að tortímingu.