Stálheppinn miðahafi var einn með allar tölur réttar og fær fyrir það rúmar 41,1 milljónir króna í sinn hlut. Miðinn var keyptur á N1, Bíldshöfða í Reykjavík. Fjórir skipta með sér bónusvinningnum og fær hver þeirra rúmlega 172 þúsund krónur í vinning. Tveir miðar voru keyptir á heimasíðunni Lotto.is og tveir miðar voru keyptir í Lottó appinu.
Sex miðahafar voru með 2. vinning í Jóker og fá 100 þúsund krónur hver. Miðarnir voru keyptir á heimasíðu okkar, Lotto.is, tveir í Lottó appinu og þrír miðar voru í áskrift.
Heildarfjöldi vinningshafa var 8.566.