Hráefni fyrir 5:
- 5 sneiðar súrdeigsbrauð
- 5 msk basilpestó
- 10 sneiðar góð skinka
- 5 sneiðar ferskur mozzarella
- 5 léttsteikt egg
- fersk basilika til skrauts
Aðferð:
1. Hitið ofninn í 200 gráður og leggið bökunarpappír á ofnplötu.
2. Raðið brauðsneiðum á plötuna og smyrjið 1 msk af basilpestói á hverja sneið. Toppið brauðsneiðarnar með mozzarella sneiðunum. Setjið inn í ofn í 5 mín.
3. Á meðan brauðið er í ofninum eru 5 egg léttsteikt á stórri pönnu og krydduð með salti og pipar. Takið næst brauðið úr ofninum og leggið 1 egg á hverja sneið. Skreytið með ferskri basiliku og berið fram strax.