Samtök iðnaðarins tileinka árið 2022 grænni iðnbyltingu. Ári grænnar iðnbyltingar verður ýtt úr vör fimmtudaginn 10. febrúar kl. 15.00 hjá Carbfix á Hellisheiði að viðstöddum forseta Íslands, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Með Ári grænnar iðnbyltingar vilja Samtök iðnaðarins leggja sitt af mörkum til að vekja athygli á mikilvægi grænna umskipta sem þegar eru hafin í íslensku atvinnulífi. Til að ná metnaðarfullum markmiðum stjórnvalda í loftslagsmálum þarf nýsköpun, fjárfestingar, orkuskipti og samstarf svo eitthvað sé nefnt. Fjölmörg iðnfyrirtæki vinna að lausnum sem stuðla að minni kolefnislosun.
Það fer vel á því að hefja Ár grænnar iðnbyltingar hjá Carbfix sem er meðal aðildarfyrirtækja SI en starfsemi þess hefur vakið heimsathygli fyrir byltingarkennda tækni við kolefnisbindingu.
Dagskrá:
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, stýrir dagskrá
- Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands
- Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
- Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
- Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix