Karlmaður á þrítugsaldri með COVID-19 lést á gjörgæslu í gær. Þetta kemur fram á vef Landspítalans
32 sjúklingar liggja nú á spítalanum með COVID-19. Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél.
8.188 sjúklingar eru í COVID göngudeild spítalans, þar af 2.579 börn.