Auglýsing

Margþættur ágóði af störfum jafningja: „Það er líf eftir geðdeild“

Nína Eck er jafningi á Geðsviði Landspítalans auk þess sem hún stundar meistaranám í félagsráðgjöf. Hún er að segja má brautryðjandi sem jafningi hér og segir að með jafningjastarfinu sé verið að reyna að brjóta upp hvernig við hugsum um geðþjónustuna, þegar einstaklingur leggst inn á geðdeild. Starfið snúist ekki um meðferð heldur að tveir einstaklingar geti náð saman, haft stuðning hvor af öðrum, deilt hugsunum sínum og tilfinningum, sigrum og sorgum. Eða bara að vera … eins og hún orðar það.

Jafningjastuðningur (e. peer support) er ekki nýr af nálinni þótt hann sé ekki vel þekktur hér. Það var um 1920 sem fólk var fengið inn á lokaðar geðdeildir, einstaklingar sem höfðu náð bata til stuðnings veikum þar. Jafningjastuðningur snýst um að tveir einstaklingar geti náð saman og verið til taks hvor fyrir annan.

Rannsóknir á jafningjastuðningi gefa til kynna að ágóðinn sé þrenns konar samkvæmt því sem Nína segir. „Í fyrsta lagi fái þeir sem nýta þjónustuna von um bætta framtíð þegar jafninginn deilir reynslu sinni á jákvæðan hátt og sýni að mögulegt sé fyrir hann að ná stjórn á veikindum sínum í stað þess að þau stjórni honum. Jafninginn sýnir að það er hægt að komast úr þessum aðstæðum.

„Og að færa sig úr hlutverki sjúklings í hlutverk hetju í eigin lífi,“ eins og Nína orðar það. Í öðru lagi sýnir jafninginn líka jákvæða fyrirmynd með því að deila með skjólstæðingi sínum eigin aðferðum til að takast á við einkenni veikindanna og hliðarverkunum þeirra. Þetta á bæði við að öðlast færni samhliða til að takast á við daglegt líf en einnig að lifa með lágri eða jafnvel engri innkomu, ótryggu húsnæði, neikvæðu viðhorfi í samfélaginu, áföllum og mismunun. Þriðji ágóðinn liggur í sambandi jafningja og þjónustuþega. Traust þarf að ríkja þar, samkennd og virðing. Samkenndin og skilningurinn kemur t.a.m. fram í færni jafningjans í að lesa í þarfir og líðan þjónustuþegans með þá reynslu og þekkingu sem hann öðlaðist sem notandi þjónustunnar.“

Nína tekur fram að mikilvægi jafningja sé enn fremur undirstrikað þegar litið er til þess að geðheilbrigðisþjónusta er sein til að taka breytingum og hefur það jafnvel valdið skaða hjá notendum hennar samkvæmt því sem komið hefur fram erlendis.

Aðspurð segist hún brenna fyrir starfi sínu, hún sé ótrúlega lánsöm, yfirmenn hennar standi 100% á bak við hana og veiti henni góðan stuðning. „Ég er hvatvís, vil gera hlutina og ég er alltaf að bíða eftir að fá nei, en það hefur ekki komið enn. Þetta frelsi er frábært en svo hef ég reglulega stöðufundi. Ég byrjaði á Laugarásnum, sem er deild fyrir ungt fólk með geðrofssjúkdóma, þar hafði fólk verið í samstarfshópi til að búa til þetta starf þannig að ég var fyrsti starfsmaðurinn sem var ráðinn í desember síðastliðnum. Það var hlaðið á mig lesefni og svo kynnti ég þetta efni og hvað fælist í starfinu fyrir starfsfólki, en það er svolítið erfitt stundum, eðli málsins samkvæmt, erfitt að skýra út hvað ég geri í vinnunni, ég er ekkert komin með það 100% sjálf,“ segir hún og brosir. „Þetta er ekkert niðurneglt. Ætlunin var að koma þessu á líkt og er í Danmörku að hafa jafningja á flestum innlagnardeildum og ég hef svolítið fengið að hafa frelsi til frumkvæðis. Ég var með kynningu á fundi þar sem alls konar fagfólk var og kynnti fyrir því út á hvað þetta gengur og til að kanna hvort fólk væri tilbúið til að taka þátt í þessari tilraunastarfsemi. Ég var svo ráðin á Laugarás í 80% starf en með frelsi til að prófa að vinna á fleiri deildum ef fólk hefði áhuga á því.“

Nína segir að starf jafningja sé beint og óbeint. Hún segist sitja teymisfundi og taka þátt í umræðum um veikindi og aðstæður skjólstæðinga og fleira og geti þá gefið sína innsýn í hlutina. Bein vinna felist í samtali við notanda, heyra sögu hans og byggja upp sjálfstraust hans, byggja upp samband við jafningja, nýta færni þjónustuþega og setja markmið. Undir óbeina vinnu flokkist öll skipulagsvinna, samskipti við samstarfsfólk, að þróa hópavinnu, afla upplýsinga, starfsþjálfun, sinna fræðslu eða vitundarvakningu og síðast en ekki síst að þiggja aðstoð varðandi eigin heilsu. Nína segir að starfsfólk tali um að það sé gott að hafa jafningja – þeir komi t.d. með ábendingar um ýmislegt sem betur megi fara inni á deildunum eða í þjónustu og fleira kemur til. „Ég hef heyrt frá fagfólki að því finnst mjög gott að fá önnur augu á það sem það veit ekki. Ég vinn á deild þar sem er fólk með geðrofssjúkdóma, ég hef enga reynslu af því að fara í geðrof en samt sit ég á fundum með sálfræðingum, hjúkrunarfræðingum og læknum. Ég fæ frelsi til að tjá mig og ég þarf ekki að þekkja þessa hluti faglega. Með jafningastuðningi er verið að reyna að brjóta upp hvernig við hugsum um geðþjónustuna þegar einstaklingur kemur inn og fær þjónustu hjá einhverju fagmenntuðu fólki. Með jafningja kemur raunverulega annars konar vitneskja inn í geðþjónustuna. Þá er verið að nýta og koma með persónulega reynslu og þekkingu á bataferli inn í þessa flóru af fagþekkingu. Persónuleg reynsla af geðþjónustunni verður að vera til staðar. Þetta er gott bæði fyrir fagaðila og skjólstæðinga, eða notendur.“

„En þegar þú talar við mig sem jafningja, þá er það þannig að ég veit ekkert meira en þú um neitt en við getum speglað hvort annað eins og vinir gera – kannski hefur þú reynslu af einhverju sem ég er að ganga í gegnum og við getum talað um það og öfugt.“

Færri endurinnlagnir þar sem jafningjar eru

Aðspurð segir Nína að rannsóknir sýni mismunandi niðurstöður varðandi betri líðan sjúklinga þar sem jafningar eru á geðdeildum en þær sýni áhugaverða hluti. „Það eru þó sameiginlegir þættir eins og meiri von gagnvart framtíðinni hjá sjúklingum. Rannsóknum ber ekki alveg saman um hverju jafningastarfið skilar. Í einni rannsókn var talað um færri endurinnlagnir en maður verður að taka tillit til þess að heilbrigðiskerfin eru mismunandi eftir löndum. Hér er þröskuldurinn mjög hár varðandi innlagnir þannig að fólk sem fer í endurinnlögn er þá í miklum vanda. Engin rannsókn segir þó að þetta hafi neikvæð áhrif, spurningin er bara, hefur þetta nógu mikil jákvæð áhrif til að jafningjastarfið verði að vera hluti af geðþjónustunni eða bara aukaþáttur. Meðferðarsamtal er „one way“-tengsl en í jafningjasamtali eru tveir aðilar á jafningjagrundvelli. „Ég er ótrúlega þakklát spítalanum fyrir þetta framtak sem jafningastarfið er og fyrir mig að fá tækifæri til að taka þátt í að byggja þetta upp er gefandi og gaman. Hæfniskröfurnar í starfið eru í raun þær að þú hafir reynslu af bataferli á þessu sviði.“

Nína hvetur því fólk til að sækja um jafningjastarf. Hún segir starfið gefandi og jafnframt að námið í félagsráðgjöfinni og starfið fléttist vel saman, hún geti nýtt það sem hún hefur lært í jafningjastarfinu í náminu og öfugt. Nú er þó komið að nýjum hluta í jafningjastarfinu. „Ég er núna að afla gagna vegna þess að ætlunin er að fjölga jafningum sem er mjög ánægjulegt. Það má segja að ég sé að árangursmæla hversu vel hefur gengið að innleiða starfið og mér að hefja starf sem jafningja. Ég er þó ekki að árangursmæla starfið sjálft,“ segir hún með áherslu. „Mér finnst ég vera á stað þar sem mér finnst allt vera að smella.“

Viðtalið við Nínu má finna í heild sinni á vef Geðhjálpar.

Sjá einnig: Nýsköpunarflötur í rannsókn Nínu: „Hagur barns ætti að vera hafður í forgrunni“

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing