Náttúruhamfarirnar sem nú dynja yfir Grindavík og tæplega fjögur þúsund íbúa sveitarfélagsins hafa vakið athygli út um allan heim á undanförnum dögum. Nútíminn hefur tekið saman nokkrar fréttir sem erlendir miðlar hafa birt af jarðhræringunum í Grindavík og rýmingu bæjarins. Um er að ræða fréttamiðla á borð við FOX News, CBS, Al Jazeera, Sky News og India Today.