Auglýsing

Tap Arsenal í gær leiddi til útkalls lögreglunnar í Reykjavík

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk tilkynningu um mikil öskur og læti bærist frá íbúð einni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi en þegar lögreglumenn komu á staðinn kom í ljós að þarna voru Arsenal-aðdáendur að horfa á lið sitt tapa í knattspyrnuleik í gær.

„Þau könnuðust ekki við nein öskur annað en það sem gengur og gerist yfir fótboltaleik. Þau lofuðu þó að lækka róminn yfir leiknum,“ segir í dagbók lögreglunnar.

Annars var mikill erill hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu frá því klukkan 17:00 í gær og þar til 05:00 í morgun en fyrir utan brjálaða Arsenal-aðdáendur var allt frá þjófnaði, tilkynning um reyk sem reyndist gufa, maður sem afklæddist á gangstétt og flugeldastríð. Hér fyrir neðan er dagbókin eins og hún er skrifuð upp af embættinu sjálfu.

Stöð 1 – Austurbær, Vesturbær, Miðborg og Seltjarnarnes

  • Tilkynnt um mann sem braut rúðu í leigubifreið, aðilinn handtekinn á vettvangi. Hann fluttur á lögreglustöð þar sem hann var vistaður í klefa en hann var í mjög annarlegu ástandi.
  • Tilkynnt um þjófnað úr fataverslun í miðbænum. Þrír grunaðir gerendur en þeir voru farnir þegar lögregla kom á vettvang. Málið er í rannsókn.
  • Tilkynnt um reyk koma frá nýbyggingu. Lögregla fór á vettvang, enginn eldur heldur gufa.
  • Tilkynnt um mann öskra í miðbænum, hann fannst ekki.
  • Tilkynnt um öskur og læti koma frá íbúð. Þarna reyndust vera Arsenal áðdáendur að horfa á Arsenal tapa, þau könnuðust ekki við nein öskur annað en það sem gengur og gerist yfir fótboltaleik. Þau lofuðu þó að lækka róminn yfir leiknum.
  • Tilkynnt um umferðarslys þar sem ökumaður missti stjórn á bifreið sinni. Minniháttar meiðsli en bifreiðin óökufær, skráningarnúmer fjarlægð af bifreiðinni.
  • Tilkynnt um þjófnað af hóteli, úlpu stolið af hótelgesti en í úlpunni voru greiðslukort sem voru notuð í verslun í miðbænum. Málið í rannsókn.
  • Ökumaður sektaður fyrir að aka án gildra ökuréttinda.
  • Tilkynnt um mann vera að afklæðast á gangstétt í íbúðarhverfi. Lögregla fór og kannaði með manninn.
  • Óskað eftir aðstoð lögreglu við að vísa gest út af veitingarstað.

Stöð 2 – Hafnarfjörður og Garðabær

  • Tilkynnt um þjófnað úr verslun þar sem gerandi var undir sakhæfisaldri, málið unnið með foreldrum og tilkynning verður send til barnaverndar.
  • Tilkynnt um ,,flugeldastríð‘‘, lögregla fór og kannaði málið. Allir farnir af vettvangi en sjá mátti tóma flugelda pakkningar á víð og dreif.
  • Tilkynnt um umferðaróhapp þar sem ökumaður ók á vegrið, ekkert slys á fólki.
  • Tilkynnt um mann sem var lagstur á akrein og virtist ofurölvi. Lögregla fór og kannaði með manninn.

Stöð 3 – Kópavogur og Breiðholt

  • Tilkynnt um aðfinnsluvert aksturslag á bifreið, hún fannst ekki.
  • Tilkynnt um umferðaróhapp þar sem ökumaður bakkaði á aðra bifreið. Lögregla fór á vettvang og ræddi við ökumann. Ekkert sjáanlegt tjón var á bifreiðunum.
  • Tilkynnt um ungmenni reykja kannabis, lögregla fór og kannaði málið. Engan að sjá.

Stöð 4 – Grafarvogur, Árbær og Mosfellsbær

  • Tilkynnt um umferðaróhapp, þar sem ökumaður ók aftan á aðra bifreið. Önnur bifreiðin óökufær, ekkert slys á fólki.
  • Tilkynnt um umferðaróhapp þar sem ökumaður ók á staur. Ökumaður fluttur á bráðamóttökuna með minniháttar meiðsl.
  • Tilkynnt um eld í bifreið, lögregla fór á vettvang ásamt slökkviliði.
  • Tilkynnt um grunsamlegar mannaferðir við nýbyggingu.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing