Auglýsing

Innbrotahrina á höfuðborgarsvæðinu: „Kveikið á útiljósum og lokið gluggum“

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við innbrotafaraldri en undanfarið hefur verið nokkuð um innbrot í heimahús og eru þjófarnir sagðir einkum á höttunum eftir skartgripum og peningum að því er virðist. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sem birt er á samfélagsmiðlinum Facebook.

Innbrotsþjófar fylgjast gjarnan með húsum áður en þeir láta til skarar skríða, hringja jafnvel dyrabjöllunni og þykjast vera að spyrja eftir einhverjum, og því er mikilvægt að hafa þessi atriði í huga. Munið að það er betra að hringja einu sinni of oft í lögregluna með upplýsingar af þessu tagi en einu sinni of sjaldan. Lögreglan vill ennfremur minna á mikilvægi þess að fólk gangi tryggilega frá heimilum sínum, t.d. að loka gluggum, þegar það fer að heiman og ekki er úr vegi að tilkynna nágrönnum um slíkt, en nágrannavarsla getur skipt sköpum þegar kemur að því að upplýsa innbrot eða koma í veg fyrir þau, segir í tilkynningu lögreglunnar.

Þá minnir hún sérstaklega á eigenda íbúða að kveikja útiljós séu þau til staðar, hvort sem um ræðir bakatil við hús eða að framanverður.

Slíkt einfaldar nágrönnum að sjá umferð/mannaferðir við húsin. Sömuleiðis er mikilvægt að fólk upplýsi ekki um fjarveru sína fyrir allra augum þegar farið er í frí, t.d. með tilkynningu á samfélagsmiðlum.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing