Auglýsing

Grindvíkingar streyma inn í heimabæinn: 1200 manns sóttu búslóðir í gær

Í gær fóru yfir 1200 manns til Grindavíkur, langstærsti hópurinn íbúar en aðrir viðbragðsaðilar.

Vel gekk að koma íbúum inn í bæinn frá tveimur áttum eða frá Nesvegi og Suðurstrandavegi. Með því kerfi sem notað var í gær og síðustu daga höfðu viðbragðsaðilar yfirsýn yfir þau sem voru innan bæjarmarkana. Í dag er svipaður dagur þegar yfir 1000 manns fara til Grindavíkur og eins og í gær um 400 bílar í hverju tímahólfi.

„Umsóknir vegna aðstoðar við íbúa í Grindavík eru margar. Mikil vinna er í gangi við yfirferð á þeim og verður þeim öllum svarað,“ segir í tilkynningu frá Almannavörnum

Þegar aðstoð við íbúa, sem hafa óskað efir henni verður veitt þá verður það óháð fyrirfram ákveðnum tímaáætlunum. Sem þýðir um leið og íbúi fær símtal um að aðstoð ákveðinn dag þá fær íbúi QR kóða fyrir þann dag.

„Þegar ljóst er hvenær hver og einn fær aðstoð vegna flutninga fær viðkomandi símtal, erfitt er að segja til um hvenær hringt verður í þau sem hafa sent inn beiðni. Búið er að láta þau vita sem fá aðstoð í dag, mánudag.“

Öllum beiðnum sem snúa eingöngu um geymslu vegna búslóðar hefur verið svarað. Geymsluplássið er á Flugvöllum 20, 230 Reykjanesbær. Þar er opið milli 11:00-23:00.

Auglýsing

læk

Auglýsing
Auglýsing

Fréttir

Auglýsing