Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nægu að snúast frá því klukkan 17:00 í gær og þar til 05:00 í nótt. Í dagbókarfærslum lögreglunnar kemur fram að borist hafi tilkynning um ungmenni í átökum við félagsmiðstöð en þegar lögreglumenn mættu á staðinn lögðu ungmennin á flótta og segir í dagbókinni að þá upphófst hlaupandi eftirför sem endaði svo að allir náðust.
„Reyndust undir áhrifum áfengis. Fluttir á lögreglustöð og málið leyst með aðkomu barnaverndaryfirvalda,“ segir í dagbókinni.
Önnur verkefni er hægt að lesa um hér fyrir neðan skipt upp eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglustöð 1 – Austurbær – Miðbær – Vesturbær – Seltjarnarnes:
- Tilkynnt um ungmenni í átökum við félagsmiðstöð. Við komu lögreglu lögðu þau á flótta og upphófst hlaupandi eftirför sem endaði svo að allir náðust. Reyndust undir áhrifum áfengis. Fluttir á lögreglustöð og málið leyst með aðkomu barnaverndaryfirvalda
- Tilkynnt um ógnandi mann með tvo hnífa á lofti í verslun í hverfi 108. Maðurinn handtekinn á vettvangi og vistaður í þágu rannsóknar málsins.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður – Garðabær – Álftanes:
- Lögregla send ásamt sjúkraliði vegna aðila sem hafði dottið af hestbaki. Fluttur til aðhlynningar á slysadeild.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur – Breiðholt:
- Ökumaður stöðvaður grunaður um ítrekaðan akstur án gildra ökuréttinda. Afgreitt samkvæmt venju.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur – Mosfellsbær – Árbær:
- Tilkynnt um bílveltu í hverfi 271. Minniháttar slys á fólki.
- Haft afskipti af bifreið sem reyndist á röngum skráningarmerkjum. Ökumaður gaf upp persónuupplýsingar sem reyndust ekki réttar. Við frekari skoðun reyndist aðilinn vera eftirlýstur og var því handtekinn. Vistaður í þágu rannsóknar.