Lögfræðingurinn og fyrrum hæstaréttardómarinn Jón Steinar Gunnlaugsson er myrkur í máli þegar það kemur að Knattspyrnusambandi Íslands sem hann segir sýna forkastanlega framkoma við þá knattspyrnumenn sem hafa verið hafðir fyrir sökum um kynferðisbrot sem þeir andmæla og hafa ekki verið sönnuð.
„Sambandið setur þá sem svona stendur á um í bann við að taka þátt í kappleikjum á vegum þess. Hvaðan kemur þessu sambandi heimild til að sakfella þá sem svona stendur á um? Þessi framkvæmd er auðvitað mjög íþyngjandi fyrir þá knattspyrnumenn sem hlut eiga að máli bæði gagnvart almenningi og stundum jafnvel í starfi sem atvinnumenn í knattspyrnu,“ skrifar Jón Steinar á Facebook-síðu sína og spyr hvort ekki sé unnt að bíða með viðurlög.
„Er ekki unnt að bíða með að beita þá viðurlögum þar til rétt yfirvöld í landinu hafa leyst úr máli þeirra á þann veg að sökin teljist sönnuð? Kannski búið sé að fá andstæðingum íslenska landsliðsins vopn í hendur til að hindra þessa pilta í þátttöku í kappleikjum gegn þeim?“
Jón Steinar biður fyrirsvarsmenn KSÍ að hætta þessari ósanngjörnu valdbeitingu.
„Þið farið ekki með guðlegt vald sem heimilar ykkur svona framferði. Munið að reglan um sakleysi þar til sekt er sönnuð gildir ekki bara við meðferð mála fyrir dómi. Þetta er líka regla af siðferðilegum toga sem gildir í samskiptum borgaranna yfirleitt.“