Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð að skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur í nótt en upplýsingarnar sem lögreglumenn fengu áður en þeir komu á staðinn voru á þann veg að einn einstaklingur hafi ráðist á annan. Við frekari eftirgrennslan lögreglu á vettvangi kom í ljós að gerandinn var starfsmaður á staðnum.
Var ofbeldisfulli starfsmaðurinn handtekinn og fórnarlamb hans flutt á bráðamóttöku Landspítalans.
Þá var nokkuð var um útköll tengt ölvun, grunsamlegum mannaferðum sem og ólátum eða slagsmálum. Listinn er ekki tæmandi en honum er skipt upp eftir hverfum á höfuðborgarsvæðinu.
Lögreglustöð 1 – Austurbær- Miðbær-Vesturbær-Seljarnarnes:
Tilkynnt um aðila vera að veitast að öðrum aðila með hníf í hverfi 105. Meintur gerandi handtekinn og er hann grunaður um hótanir og vopnalög. Meintur gerandi vistaður í þágu rannsóknar málsins.
Tilkynnt um líkamsárás í hverfi 101.
Tilkynnt var um líkamsárás í hverfi 101. Einn aðili var fluttur á bráðarmóttöku landsspítalans. Meintur gerandi reyndist vera starfsmaður á skemmtistað í miðbæ Reykjavíkur og var hann handtekinn í þágu rannsóknar málsins.
Lögreglustöð 2 – Hafnarfjörður- Garðabær- Álftanes:
Höfð voru afskipti af aðila sem var að aka bifreið án skráningarmerkja. Aðilinn á von á sekt vegna málsins.
Ökumaður bifreiðar handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Ökumaður bifreiðarinnar laus úr haldi lögreglu að blóðsýnatöku lokinni.
Lögreglustöð 3 – Kópavogur- Breiðholt:
Tilkynnt um umferðarslys í hverfi 201. Minniháttar slys á fólki.
Tilkynnt um eld í rafmagnshlaupahjóli sem var í bifreiðarkjallara í hverfi 109. Eldur minniháttar og viðráðanlegur.
Tilkynnt um þjófnað í verslun í hverfi 111.
Höfð voru afskipti af ökumanni sem ók á 117/km/klst þar sem hámarkshraði vegar er 80 km/klst. Ökumaður á yfir höfði sér sekt.
Lögreglustöð 4 – Grafarvogur- Mosfellsbær- Árbær:
Ökumaður bifreiðar handtekinn vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis.
Tilkynnt um samkvæmishávaða í hverfi 110.