Ein af vinsælustu uppskriftum síðasta árs er án efa ein ljúffengasta sulta sem hægt er að skella á hamborgarann eða bara njóta með góðum osti. Um er að ræða hina frægu beikon-lauksultu.
Nútíminn heldur áfram að birta vinsælustu uppskriftir síðasta árs og eins og áður hefur komið fram er kominn tími á vinsælasta rósakál landsins og rúmlega það. Hér er það með parmesan og hvítlauk. Verði ykkur að góðu!
Verði ykkur að góðu!
Hráefni:
- 1 pakki beikon
- 2 laukar skornir í sneiðar
- 1 tsk sjávarsalt
- 3 msk ljós púðursykur
- 1/2 dl balsamik edik
- 1 tsk ferskt timjan
- cayenne pipar eftir smekk
- 1 dl vatn
- Salt og pipar eftir smekk
- 1-2 msk smjör
Aðferð:
1. Steikið beikon á pönnu eða í ofni þar til þar verður vel stökkt. Þegar beikonið er klárt leggið það á fat með eldhúspappír á, hann drekkur í sig mestu fituna.
2. Hitið smjör á pönnu og steikið laukinn í um 10 mín og hrærið í honum á meðan.
3. Á meðan laukurinn steikist þá er steikta beikonið skorið í litla bita og leggið til hliðar. Þegar laukurinn er farinn að brúnast á pönnunni þá hrærum við saman við hann salt, púðursykur, balsamik edik, timjan og smá cayenne pipar. Hrærið vel saman.
4. Setjið skorna beikonið saman við ásamt 1 dl af vatni. Leyfið þessu að malla þar til þetta fer dökkna og áferðin verður eins og á sultu eða í um 20 mín. Smakkið til og kryddið til eftir smekk.
5. Sultan geymist í lokuðu íláti í kæli í allt að 2 vikur.